
VSB verkfræðistofa
VSB er verkfræðistofa sem veitir þjónustu á sviði mannvirkjagerðar, framkvæmda og skipulags. VSB veitir viðskiptavinum ráðgjöf af hagkvæmni, fagmennsku og áreiðanleika. Á stofunni starfa um 35 manns. VSB hefur aðsetur á Bæjarhrauni 20 í Hafnarfirði.

Tækniteiknari
VSB verkfræðistofa leitar að öflugum tækniteiknara til framtíðarstarfa í spennandi verkefnum á byggingar- og byggðatæknisviði. Í boði er frábært starfsumhverfi og fjölbreytt verkefni á sviði burðarvirkja, lagna- og loftræsikerfa, rafkerfa og gatna- og veituhönnunar
Sviðsstjóri byggingarsviðs, Guðjón Magnússon ([email protected]), veitir frekari upplýsingar. Umsókn um starfið með upplýsingum um menntun, hæfni og starfsreynslu óskast skilað á Alfreð.is eigi síðar en 13. maí næstkomandi.
Fyllsta trúnaðar er gætt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tækniteiknun á byggingarsviði, þ.m.t. burðarvirkja-, raflagna- og lagnasvið.
- Tækniteiknun á byggðatæknisviði, þ.m.t. lóðauppdrættir, gatnagerð og veituuppdrættir.
- Frágangur, samræming og útgáfa teikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð reynsla sem tækniteiknari
- Mjög gott vald á Revit og AutoCAD
- Góð reynsla af vinnu í BIM umhverfi
Fríðindi í starfi
Sími og símreikningur greiddur af VSB
Sveigjanlegur vinnutími
Niðurgreiddur hádegismatur
Samgöngustyrkur
Íþróttastyrkur
Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (2)

