

Hönnuður á byggðatæknisviði
Hönnuður á byggðatæknisviði
Við leitum að áhugasömum, sjálfstæðum og drífandi tækni- eða verkfræðingi til starfa á byggðatæknisviði.
Áhersla í starfinu getur verið á gatnahönnun, veituhönnun eða hvoru tveggja, eftir reynslu, áhugasviði og styrkleikum viðkomandi.
Á VSB er öflugt byggðatæknisvið þar sem starfa í dag 9 tækni- og verkfræðingar auk tækniteiknara.
Í boði eru fjölbreytt verkefni á fjölskylduvænum vinnustað með góðum starfsanda.
Sviðsstjóri byggðatæknisviðs, Kristinn Þór Garðarsson ([email protected]), veitir frekari upplýsingar. Umsókn um starfið með upplýsingum um menntun, hæfni og starfsreynslu óskast skilað á Alfreð.is eigi síðar en 13. maí næstkomandi.
Fyllsta trúnaðar er gætt.
Hönnun gatna
Hönnun fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu
Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana
Verkefnastjórnun
Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
B.Sc. eða M.Sc. í tækni- eða verkfræði
Reynsla af hönnun gatna og/eða veitna
Góð þekking á Civil 3D
Sími og símreikningur greiddur af VSB
Sveigjanlegur vinnutími
Niðurgreiddur hádegismatur
Samgöngustyrkur
Íþróttastyrkur
Íslenska










