
Verkefnastjóri hjá FSRE
FSRE leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í öflugan hóp verkefnastjóra. FSRE hefur yfirumsjón með húsnæðisöflun fyrir stofnanir ríkisins. Auk þess að stýra hönnun, undirbúningi og eftirliti með framkvæmdum við nýbyggingar felur starfsemin í sér verkefni sem varða breytingar og endurbætur á eldra húsnæði og aðstöðu. Einnig hefur FSRE umsjón með uppbyggingu ofanflóðavarna og náttúruinnviða um land allt.
Hjá FSRE starfa verkefnastjórar á öllum stigum mannvirkjagerðar sem leiða undirbúning og framkvæmd fjölbreyttra framkvæmdaverkefni um allt land. FSRE stuðlar að stöðugum framförum í byggingar- og mannvirkjagerð á Íslandi og leitast við að vera leiðandi afl og í fararbroddi við öflun á góðu en hagkvæmu húsnæði í allra þágu.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf á framsæknum og nútímalegum vinnustað.
- Verkefnisstjórn í mannvirkjagerð á stigi hönnunar og/eða framkvæmda.
- Gerð þarfa- og kostnaðargreininga og kostnaðar- og tímaáætlana
- Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna
- Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna í samráði við önnur svið FSRE
- Þátttaka í þróun lausna í samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunarinnar
- Þátttaka í framþróun verkefnastjórnunar, sem og annarra umbótaverkefna
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Menntun, vottun eða farsæl reynsla í verkefnastjórn
- Reynsla af hönnun og/eða verklegum framkvæmdum er kostur
- Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Íslenska
Enska










