Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Stöðvarstjóri Þjórsársvæðis

Framtíðarsýn okkar er sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku. Á Þjórsársvæði rekum við sjö vatnsaflsstöðvar sem nýta vatn til raforkuvinnslu og við leitum að öflugum og framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á orkumálum.

Stöðvarstjóri ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi og öryggis- og umhverfismálum aflstöðvanna á Þjórsársvæðinu. Starfið krefst faglegrar og persónulegrar forystu, stuðnings við öflugt teymi starfsfólks og stjórnun daglegs rekstrar. Stöðvarstjóri fylgist með framvindu og kostnaði verkefna og mótar jákvæðan og heilbrigðan starfsanda og er hluti af framsæknu teymi stjórnenda. Í starfinu felst að leiða metnaðarfullt starfsfólk með sjálfbærni, öryggi og vellíðan að leiðarljósi.

Helstu verkefni:

  • Að stýra daglegum rekstri aflstöðva á Þjórsársvæði með framtíðarsýn Landsvirkjunar að leiðarljósi
  • Að bera ábyrgð á eftirliti og viðhaldi orkumannvirkja
  • Að leiða og efla mannauð aflstöðvanna og styðja við þróun þekkingar og hæfni starfsfólks
  • Að vinna náið með helstu haghöfum og tryggja gott samstarf og sátt við nærumhverfið
  • Að bera ábyrgð á ferlum, fjármunum og eignum í samræmi við gildi fyrirtækisins

Menntun og reynsla

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði rafmagns eða véla
  • Leiðtogahæfni, reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma
  • Reynsla af rekstri og viðhaldsstjórnun, öryggis- og gæðamálum, færni í notkun upplýsingatækni
  • Frumkvæði og jákvæðni, framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
  • Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Við leggjum ríka áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Sem hluti af okkar teymi tekur þú þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið og hafa bein áhrif á orkuvinnslugetu framtíðarinnar. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu.

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar