

Forstöðumaður stafrænnar þróunar og upplýsingatækni
Forstöðumaður stafrænnar þróunar og upplýsingatækni
Við leitum að framsæknum og metnaðarfullum aðila til að ganga til liðs við öflugan hóp starfsfólks ÁTVR. Um er að ræða nýtt og spennandi starf sem heyrir undir framkvæmdastjóra dreifingar, fasteigna og tækni.
Forstöðumaður stafrænnar þróunar og upplýsingatækni ber ábyrgð á að leiða og þróa upplýsingatækni og stafræna vegferð fyrirtækisins í samræmi við stefnu og þarfir starfseminnar. Starfið felur í sér ábyrgð á öruggum og skilvirkum tæknirekstri, þróun stafrænna lausna og greiningu á tækifærum til umbóta sem styðja við rekstur, þjónustu og ákvarðanatöku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og styðja við teymi stafrænnar þróunar og upplýsingatækni
- Tryggja öruggan og hagkvæman rekstur upplýsingakerfa og tæknilegra innviða
- Greina tækifæri til umbóta og leiða innleiðingu á snjöllum stafrænum lausnum
- Tryggja gæði, samræmi og árangur í samstarfi við þjónustuaðila vegna aðkeyptrar þjónustu og búnaðar
- Efla gagnadrifna nálgun og stuðla að bættri nýtingu gagna við greiningar og ákvarðanatöku
- Vinna þvert á fyrirtækið með stjórnendum og starfsfólki að umbótum og framþróun
- Umsjón með fræðslu og þjálfun notenda
- Þátttaka í stefnumótun, áætlanagerð og forgangsröðun verkefna á sviðinu
- Sinna kostnaðargreiningu, kostnaðareftirliti og mati á hagkvæmni lausna
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- A.m.k. 3 ára reynsla á sviði upplýsingatækni, stafrænnar þróunar eða sambærilegu starfssviði
- Góð þekking á rekstri upplýsingakerfa, þjónustustýringu og samstarfi við tækniaðila
- Reynsla af breytingastjórnun, umbótaverkefnum og innleiðingu nýrra lausna
- Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund, mjög gott viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög góð tölvukunnátta og þekking á Microsoft umhverfi
- Mikil hæfni við gagnaúrvinnslu og greiningar
- Hæfni til að miðla upplýsingum
- Reynsla af kostnaðarmati og samningagerð er kostur
- Reynsla og þekking á BC er kostur
Frekari upplýsingar
Starfshlutfall er 100%.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí nk. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected].
ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Enska
Íslenska





