Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar

Forstöðumaður Dalslaugar

Reykjavíkurborg auglýsir starf forstöðumanns Dalslaugar á Menningar- og íþróttasviði laust til umsóknar. Auk sundlaugar er í mannvirkinu leikskóli, grunnskóli, frístundaheimili, félagsmiðstöð, bókasafn og íþróttahús.

Hlutverk forstöðumanns er að reka Dalslaug og sameiginlega afgreiðslu fyrir allt húsið. Sameiginleg afgreiðsla kallast Miðdalur og sinnir gestum sundlaugar, bókasafns og öðrum sem þangað sækja og sér um veitingasölu og útleigu sala. Verið er að endurskipuleggja afgreiðsluna og verður ráðinn þjónustustjóri yfir henni.

Leitað er að skapandi og metnaðarfullum leiðtoga með góða samskiptahæfni og getu til að starfa í fjölbreyttu og krefjandi vinnuumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með daglegri starfsemi Dalslaugar og afgreiðslunnar í Miðdal en það felur í sér ábyrgð og eftirlit með fjármálum, rekstri, innkaupum, mannvirki og mannauðsmálum.
  • Þróa hlutverk afgreiðslu þannig að hún mæti betur þörfum gesta.
  • Ábyrgð á að rekstur standist kröfur samkvæmt reglugerðum um starfsemina.
  • Innleiðing og eftirlit  með því að öryggiskröfum, lögum og reglugerðum, sem í gildi eru hverju sinni, sé framfylgt.
  • Samskipti við fasteignastjóra og umsjónarfólk fasteigna tengt viðhaldi og ásynd mannvirkis.
  • Ýta undir að öll geti upplifað og notið starfseminnar í Miðdal og þannig stuðlað að gleði, vellíðan og bættri lýðheilsu gesta.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Leiðtogahæfileikar.
  • Víðtæk reynsla af gerð og eftirfylgni með fjárhagsáætlun og rekstrarstjórn.
  • Víðtæk reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
  • Lipurð og færni í samvinnu og samskiptum.
  • Reynsla af framsetningu og greiningu gagna og miðlun mikilvægra upplýsinga.
  • Skipulagshæfni, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna fjölbreytt verkefni undir álagi.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 skv. evrópska tungumálarammanum.
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Úlfarsbraut 128
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar