
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála, skipulagsmála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform.
Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkja- og skipulagsmála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 190 talsins.

Stjórnandi á svið Mannvirkja og markaðseftirlits
Vilt þú starfa sem stjórnandi á nútímalegum vinnustað sem ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum?
Við óskum eftir metnaðarfullum stjórnanda á svið Mannvirkja og markaðseftirlits til að leiða teymi markaðseftirlits.
Hlutverk teymisins er að hafa virkt eftirlit með ýmsum vöruflokkum á markaði með tilliti til lögbundinna krafna, þar með talið öryggis, visthönnun orkutengdra vara og orkumerkinga. Teymið sinnir einnig eftirliti með löggildingum voga og loks fellur rekstur Vöruvaktarinnar (voruvaktin.is) undir teymið. Markmið teymisins er að tryggja neytendavernd þegar kemur að vörum á markaði.
Óskað er eftir einstaklingi sem þrífst vel í árangursdrifnu umhverfi þar sem lögð er áhersla á skýr samskipti, skilvirka stjórnsýslu og góða þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur stjórnandi teymis
- Ábyrgð á verkefnum teymis og árangursmælikvörðum
- Stuðla að góðum samskiptum og samstarfi innan HMS og við hagaðila
- Sinna fræðslu- og kynningarstarfi um markaðseftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði lögfræði
- Árangursrík og farsæl reynsla af stjórnun
- Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
- Þekking og/eða reynsla af markaðseftirliti er kostur
- Leiðtogahæfileikar og færni til að stýra verkefnum
- Góð greiningarfærni og hæfni til að setja sig inn í flókin sérfræðileg verkefni
- Mikið frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjármálastjóri
GoPro

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær

Officer - Trade Relations Division - (TRD)
EFTA Secretariat

Aðstoðarmaður landlæknis
Embætti landlækis

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Deildarstjóri/-stýra eignastýringar og viðhaldsáætlana hjá Veitum
Veitur

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa
Vínbúðin

Ráðgjafi í innri endurskoðun og upplýsingaöryggi
KPMG á Íslandi