
ÍSOR
ÍSOR er meðal þekktustu ráðgjafafyrirtækja í heiminum á sviði rannsókna og þróunar í jarðhita og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt. ÍSOR starfar samkvæmt gæðavottun ISO 9001:2015.
Kjarnastarfsemi ÍSOR er víðtæk ráðgjöf á sviði jarðvísinda með áherslu á jarðhita. Einnig sinnir ÍSOR rannsóknum, kennslu og fræðslu í jarðvísindum ásamt því að hýsa starfsemi Jarðhitaskóla GRÓ sem hefur það að markmiði að byggja upp þekkingu og getu í þróunarlöndum til sjálfbærrar nýtingar vistvænna jarðvarmaorkugjafa.
Starfsfólk ÍSOR myndar þverfaglegan samstarfshóp sérfræðinga á sviði jarðvísinda og verkfræði þar sem faglegur áhugi og samvinna eru leiðarljós. Áhersla er lögð á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða.
Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.
Sviðsstjóri fjármála og rekstrar
Hefur þú ástríðu fyrir fjármálum og rekstri og vilt takast á við krefjandi starf í lifandi og síbreytilegu umhverfi?
ÍSOR leitar að öflugum einstaklingi í krefjandi og spennandi starf sviðsstjóra fjármála og rekstrar. Viðkomandi mun leiða sviðið, stýra rekstri þess og stuðla að því að ákvarðanataka styðji við framtíðarsýn ÍSOR.
Sviðsstjóri fjármála og rekstrar situr í framkvæmdastjórn og hefur þar mikilvægt hlutverk í stefnumótun og ákvörðunum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og stjórnun sviðsins.
- Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningshaldi, fjárreiðum, gerð ársreiknings, áætlanagerð og eftirfylgni þeirra.
- Ábyrgð á stafrænni þróun og rekstri tölvu- og gagnakerfa.
- Framkvæmd mánaðar-, ársfjórðungs- og ársuppgjöra.
- Rekstrargreining, samantekt fjárhagsupplýsinga og miðlun til framkvæmdastjórnar og stjórnar.
- Kostnaðareftirlit, nýting gagna til ákvarðanatöku og eftirfylgni verkefna til að tryggja hagkvæmni í rekstri.
- Umsjón með gjaldskrá og verðlagningu þjónustu.
- Samskipti við fjármálastofnanir og hagaðila.
- Yfirumsjón með fjárhagskerfum og aðlögun þeirra að þörfum ÍSOR.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála eða sambærilegra greina.
- Reynsla af fjármálastjórnun og reikningshaldi.
- Reynsla af verkbókhaldi og samningagerð er kostur.
- Forystuhæfileikar og framúrskarandi samskiptafærni og geta til að vinna í teymi.
- Reynsla af greiningarvinnu, framsetningu og miðlun fjárhagsupplýsinga.
- Rík stafræn hæfni, þekking og reynsla á fjárhagsupplýsingakerfum og miðlun upplýsinga, s.s. með PowerBI.
- Öguð og skipulögð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðað hugarfar.
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Framkvæmdastjóri
Festa lífeyrissjóður

Fjármálastjóri
Rafholt ehf.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - Vesturbyggð
Vesturbyggð

Fjármálastjóri
Menntasjóður námsmanna

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Rekstrar- og viðhaldsstjóri
Björgun-Sement

Framkvæmdastjóri
Félagsbústaðir

Fjármálastjóri
Sveitarfélagið Skagafjörður

Viltu stýra stærstu jarðhitaauðlindum Íslands?
Orkuveitan

Framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands