
Þjónustustjóri tækniþjónustu
Hefur þú brennandi áhuga á þjónustu og tækni?
Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig...
Þjónustustjóri tækniþjónustu óskast til að stýra veitingu fjölbreyttrar tækniþjónustu hjá Þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar.
Markmið starfsins er að notendaþjónusta og eignaumsjón UT-þjónustu sé örugg, áreiðanleg, skilvirk og í samræmi við þær kröfur og væntingar sem til hennar eru gerðar. Jafnframt er lögð áhersla á að gæði þjónustunnar séu mæld með markvissum hætti og hún þróuð í takt við þjónustuloforð, breyttar þarfir notenda og stefnu borgarinnar.
Þjónustustjóri gegnir lykilhlutverki í samstarfi við hagsmunaaðila, stjórnendur og birgja og kemur að umbóta- og breytingaverkefnum sem styrkja rekstur og þjónustu UT.
Sem þjónustustjóri tækniþjónustu munt þú...
- Leiða og þróa tækniþjónustu og þjónustuframboð
- Eiga í virku samstarfi við hagsmunaaðila, stjórnendur, starfsfólk borgarinnar og helstu birgja
- Halda utan um umbóta- og breytingaverkefni tengd tækniþjónustunni
- Skipuleggja og leið úrlausn þjónustumála
- Veita ráðgjöf um þjónustu og styðja við innleiðingu lausna
- Stuðla að skapandi hugsun, lausnamiðaðri nálgun og stöðugum umbótum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking af störfum í þjónustu innan upplýsingatækni
- Þekking og reynsla af þjónustu-og gæðastjórnun
- Reynsla af þjónustuveitingu og/eða þjónustustjórnun
- Mikill áhugi á stafrænu lausnum og umbótum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Hæfni til greiningar og miðlunar gagna
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Góð skipulagshæfni og yfirsýn
- Rík þjónustulund og lausnamiðað hugarfar
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Íslenska
Enska

