
Tæknistjóri eftirlitskerfa
Ert þú með brennandi áhuga á upplýsingatækni, öryggismyndavélum og eftirlitskerfum?
Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig...
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum tæknistjóra eftirlitskerfa til starfa hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Ábyrgðarsvið tæknistjóra eftirlitskerfa er að tryggja uppitíma, áreiðanleika, öryggi og rekstur á myndavéla-, öryggis-, aðgangsstýringar og innbrotakerfum. Viðkomandi sinnir innleiðingu og vali á nýjum kerfum og tæknilausnum ásamt öðrum verkefnum sem styðja við þá þjónustu sem UT-þjónustan veitir. Tæknistjóra eftirlitskerfa ber einnig ábyrgð á samningum um útvistun reksturs á fyrrnefndum kerfum og tryggir að þjónustusalar uppfylli allar sínar skyldur er samningar kveða á um. Tryggir hlítingu við persónuverndarlög og reglur um rafræna vöktun.
Sem tæknistjóri eftirlitskerfa munt þú...
- Kortleggja núverandi eftirlitskerfi (myndavéla-, öryggis-, aðgangsstýringar- og innbrotakerfi) og viðhalda kerfismyndum
- Koma að hönnun, uppbyggingu, þróun, umsjón, daglegum rekstri og viðhaldi á eftirlitskerfum
- Fylgja gæða- og öryggisferlum og stöðlum sem settir hafa verið, og koma að þróun þeirra
- Taka þátt í framtíðarþróun á innviðum upplýsingatækni og stafrænni umbreytingu
- Samræma miðstýringu og þróa verklag er varðar innkaup, uppsetningu, staðsetningu og notkun á búnaði
- Taka þátt í upplýsingatæknitengdum verkefnum sem ráðgjafi að þeim atriðum sem snúa að rekstri eftirlitskerfa
- Taka þátt í verkefnum tengdum nýsköpun og stafrænni umbreytingu borgarinnar
- Styðja við útboðsgerð
- Taka þátt í og móta upplýsingatæknistefnu borgarinnar
- Hafa umsjón með og fylgja eftir þjónustusamningum
- Eiga í samskiptum við mismunandi hagsmunaaðila innan og utan borgarinnar
- Vera í samstarfi við tækniarkitekta, þjónustuaðila, verktaka, birgja og eftirlitsaðila
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða önnur sambærileg menntun eða reynsla
- Marktæk reynsla af rekstri tækniumhverfa
- Leiðtogafærni og reynsla af stjórnun verkefna í upplýsingatækni
- Farsæl reynsla af teymisvinnu
- Góð hæfni í framsetningu á tæknilega flóknu efni á einfaldan hátt
- Mikil hæfni í að tileinka sér nýjungar í upplýsingatækni
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Drifkrafftur, frumkvæði, og metnaður til að ná árangri í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Víðsýni og lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðhorf
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Enska
Íslenska



