Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Tæknimaður í eignaumsjón

Hefur þú gaman af tölvum og tæknidóti?

Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig...

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að tæknimanni sem hefur umsjón með heildarferli upplýsingatæknibúnaðar borgarinnar - frá móttöku og skráningu til afhendingar og förgunar. Starfið felur jafnframt í sér þjónustu við notendur, afgreiðslu beiðna í beiðnakerfi og úrlausn tæknilegra mála.

Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af því að vinna með tölvur og annan upplýsingatæknibúnað, getur sinnt forgreiningum og bilanagreiningum, skipt um helstu varahluti eða greint minniháttar bilanir áður en búnaður fer í frekara mat.

Ef þú hefur áhuga á því að vinna á faglegum og metnaðarfullum vinnustað með fullt af tæknidóti og snúrum, þar sem lögð er áhersla á umbætur, nýsköpun og góða þjónustu, þá er þetta starfið fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem tæknimaður í eignaumsjón munt þú...

  • Hafa umsjón með móttöku, skráningu, uppsetningu, geymslu og afhendingu búnaðar
  • Hafa eftirlit með birgðum, eignum og skráningum þeim tengdum
  • Afgreiða beiðnir sem tengjast búnaði og þjónustu eignaumsjónar
  • Þjónusta notendur og leysa einföld tæknileg mál
  • Veita upplýsingar, eiga í samskiptum og fylgja eftir málum við stjórnendur um málefni deildarinnar
  • Eiga samskipti við birgja og þjónustuaðila
  • Forgreina, bilanagreina og vinna að grunnviðgerðum á búnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf
  • Menntun tengd tölvubúnaði, kerfisfræði, rafmagns- eða tölvubraut eða sambærilegt er kostur
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta og tækniþekking
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Hagnýt færni í meðhöndlun tölvubúnaðar
  • Hæfni til greiningar- og skipulagsvinnu
  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar