Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Gagnaleiðtogi

Hefur þú brennandi áhuga á gervigreind, gögnum og hagnýtingu þeirra?

Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig...

Skrifstofa gagna og hugbúnaðarþróunar leitar að gagnaleiðtoga (e.Data Steward) í tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.

Markmið starfsins er að leiða hagnýtingu gagna og gervigreindar þvert á fagsvið borgarinnar, styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku og stuðla að raunverulegu virði úr gögnum fyrir íbúa, starfsfólk og fyrirtæki.

Starfið felur einnig í sér greiningarvinnu, þróun mælaborða og líkana, ráðgjöf um nýtingu gervigreindar og miðlun niðurstaðna í nánu samstarfi við fagsvið og teymi gagnaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem gagnaleiðtogi munt þú...

  • Greina þarfir fagsviða á gögnum, gervigreind og greiningum
  • Kynna þér ferla og rekstur sviða til að finna tækifæri til umbóta með bættri nýtingu gagna og gervigreindar
  • Auka hagnýtingu gagna úr vöruhúsi gagna
  • Þróa og viðhalda mælaborðum, skýrslum og líkönum
  • Tryggja að lykilgögn séu aðgengileg og sett fram á skýran og einfaldan hátt
  • Styðja við og veita hagaðilum ráðgjöf um notkun gagna og gervigreindar í sinni starfsemi
  • Stuðla að gagnadrifinni ákvarðanatöku
  • Taka þátt í vöruþróun gagna- og gervigreindarlausna
  • Taka þátt í forgangsröðun verkefna og gerð verkefnalýsinga
  • Taka virkan þátt í teymisvinnu 
  • Vera í samskiptum við hagaðila og notendur
  • Bera ábyrgð á greiningarvinnu og aðgengi að gögnum í samráði við hagaðila
  • Bera ábyrgð á skjölun og þróun verkferla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. tölfræði, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt
  • Góð kunnátta í SQL, og a.m.k. einu gagnamálanna (Python eða R)
  • Skilningur á ólíkum tegundum gervigreindar
  • Reynsla af gagnagreiningum og gagnavinnslu
  • Þekking á BI tólum 
  • Reynsla af gagnavöruhúsum er kostur
  • Góð færni í framsetningu gagna 
  • Góð greiningarhæfni og frumkvæði
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Góð geta til að vinna í teymi
  • Áhugi á opinberri þjónustu og umbótum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar