

Þjónustu- og verkefnastjóri
Við erum að leita að kröftugum aðila í teymið okkar. Um er að ræða virkilega fjölbreytt og skemmtilegt starf sem krefst þess að viðkomandi hafi skipulagshæfni, sýni sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þjónusta og verkefnastýring fyrir viðskiptavini.
-
Almenn innanhússmál, innanhússverkefnastýring og framgangur verkefna.
-
Eftirfylgni verkefna og að tryggja skil þeirra.
-
Skýrsluskil til viðskiptavina um hver mánaðamót.
-
Uppsetning og afgreiðsla sölutilboða.
-
Hugmyndavinna í sérsniðnar herferðir mismunandi fyrirtækja.
-
Fundarhald með viðskiptavinum varðandi framvindu verkefna o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Nauðsynlegt er að aðili hafi menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi.
-
Æskilegt væri að aðili hefði reynslu og þekkingu á heimi stafrænna auglýsinga.
-
Æskilegt væri að aðili hefði reynslu af verkefnastýringu.
-
Grunnskilningur og kunnátta á Excel.
Starfshlutfall er 100% og æskilegast væri að viðkomandi gæti hafið störf á næstu vikum.
Íslenska




