Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Úttektarfulltrúi

Deild byggingarmála veitir borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um byggingarmál. Auk þess vinnur deildin úr erindum sem berast byggingarfulltrúa, annast yfirferð aðal- og séruppdrátta, útgáfu byggingarleyfa, eftirlit með byggingarleyfiskyldum framkvæmdum og annast samráð við opinbera umsagnaraðila, almenning og aðra hagaðila skv. ákvæðum laga og reglugerða.

Við leitum að einstaklingi til að sinna úttektum og skoðunum fyrir byggingarleyfisskyldar framkvæmdir. Í þeim er haft eftirlit með því að þær séu gerðar samkvæmt byggingarreglugerð og gæðakerfi byggingafulltrúa og að frágangur þeirra og umhverfi sé til samræmis við samþykkt gögn, skilmála, lög og reglugerðir og staðla sem þeim tengjast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öryggis- og lokaúttektir samkvæmt skoðunarlistum og gerð vottorða.
  • Stöðuúttektir, stöðuskoðanir og eftirlit framkvæmdastöðu.
  • Yfirferð ýmissa gagna í tengslum við byggingarleyfi og skráning efnisatriða og athugasemda í málaskrá.
  • Kröfur um úrbætur og ráðstafanir ef þarf til framkvæmda- og ábyrgðaraðila.
  • Ber ábyrgð á boðun úttekta, yfirferð gagna og eftirfylgni með fyrirmælum.
  • Ber ábyrgð á að vinna til samræmis við gæðakerfi byggingarfulltrúa, verklagsreglur, þjónustustefnu sviðsins, umhverfisvottun og samkvæmt öryggisstöðlum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða í sambærilegum tæknigreinum á háskólastigi og hafa viðeigandi löggildingu á starfssviði.
  • Ökuréttindi eru skilyrði.
  • Reynsla af störfum við byggingarframkvæmdir, eftirlit eða hönnun er skilyrði.
  • Metnaður og vilji til að takast á við mismunandi, fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • Samskiptahæfni, skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Tölvufærni í notkun á algengum hugbúnaði og geta til að tileinka sér notkun nýrra kerfa.
  • Íslenskukunnátta B1-C1 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta B1.
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.Ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar