Borealis Data Center ehf.
Borealis Data Center ehf.

Sérfræðingur í reikningshaldi, uppgjöri og sjálfbærniupplýsingagjöf

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til starfa á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í alþjóðlegu umhverfi þar sem ábyrgðarsvið nær meðal annars til uppgjörs félaga í samstæðu, samstæðuuppgjörs og sjálfbærniupplýsingagjafar.

Helstu verkefni

  • Gerð mánaðaruppgjöra, ársfjórðungsuppgjöra og ársuppgjöra fyrir félög og samstæðu
  • Gerð ársreikninga
  • Samstæðuuppgjör og samstæðureikningsskil
  • Skattútreikningar
  • Umsjón með sjálfbærniupplýsingagjöf og þátttaka í innleiðingu og þróun sjálfbærniskýrslugjafar
  • Samskipti við endurskoðendur og aðra ytri hagaðila
  • Þátttaka í þróun og umbótum á ferlum og verklagi
  • Skýrslugjöf til opinberra aðila
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, reikningshaldi eða tengdum greinum
  • Reynsla af uppgjörsvinnu og gerð ársreikninga
  • Góð þekking á IS GAAP og IFRS
  • Reynsla af samstæðuuppgjöri er krafa
  • Þekking eða reynsla af ESG upplýsingagjöf og sjálfbærnimálum er kostur
  • Mjög góð Excel kunnátta og reynsla af fjárhagskerfum
  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu starfsumhverfi
  • Tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi
  • Góðan starfsanda og metnaðarfullt teymi
Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar