Menntasjóður námsmanna
Menntasjóður námsmanna

Fjármálastjóri

Menntasjóður námsmanna (MSNM) óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan fjármálastjóra til að leiða og þróa fjármálastarfsemi sjóðsins. Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem reynir á greiningarhæfni, yfirsýn, frumkvæði og góða samskiptahæfni.

Fjármálastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri stjórnun fjármála sjóðsins og vinnur náið með framkvæmdastjóra, stjórnendum og opinberum aðilum að áætlanagerð, upplýsingagjöf og áframhaldandi þróun fjármálastýringar sjóðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegri fjármálastýringu sjóðsins
  • Umsjón með gerð fjárhagsáætlana, rekstraráætlana og sjóðstreymisáætlana
  • Umsjón með bókhaldi og gerð ársreikninga
  • Eftirlit með rekstri, greiningum og eftirfylgni með fjárhagslegum markmiðum
  • Umsjón með útlánastýringu, innheimtu og endurheimtum í samstarfi við aðra stjórnendur
  • Gerð kostnaðargreininga, tölfræðivinnslu og fjárhagslegra greininga fyrir stjórnendur, stjórn og ráðuneyti
  • Ábyrgð á launavinnslu og tengdum verkefnum
  • Þróun og umbætur á verkferlum, verklýsingum og ferlum innan fjármála og bókhalds
  • Samskipti við ráðuneyti, Seðlabanka Íslands, Fjársýsluna, viðskiptabanka og aðra samstarfsaðila
  • Ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks varðandi fjárhagsleg málefni


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskiptafræði, hagfræði, reikningsskila eða endurskoðunar
  • Reynsla af bókhaldi, fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörsvinnu
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur
  • Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu upplýsinga og gagna
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs
  • Framsýni, metnaður og drifkraftur
  • Góð tölvukunnátta. Þekking á Orra, fjárhagskerfi ríkisins, er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.OraclePathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Uppgjör
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar