
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsasmiðjunni
Við leitum að reynslumiklum, faglegum og árangursdrifnum framkvæmdastjóra fjármála Húsasmiðjunnar. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf í framkvæmdastjórn eins stærsta og þekktasta smásölufyrirtækis landsins. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi mótun, rekstri og vexti félagsins í hröðu og samkeppnisdrifnu umhverfi. Ennfremur ber þessi aðili ábyrgð á upplýsingatæknisviði fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri fjármála heyrir beint undir forstjóra, situr í framkvæmdastjórn og kemur að stefnumótun og öðrum ákvörðunum sem varða rekstur Húsasmiðjunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heildarumsjón með fjármálum; fjárhagsáætlanir, greiningar, kostnaðareftirlit, sjóðstreymi og fjárfestingarákvarðanir
- Tryggja áreiðanlegt og skilvirkt fjármálakerfi og innra verklag (reglur, umbætur, áhættustýring)
- Leiða árlegt uppgjör og skýrslugerð til stjórnenda og eigenda, samskipti við endurskoðendur og bankastofnanir
- Yfirumsjón með upplýsingatæknisviði; stefnumótun, innleiðing kerfa, gagnaöryggi og stafrænum lausnum sem styðja við verslun og rekstur
- Stuðla að sjálfbærni og hagkvæmni í rekstri með gagnadrifnum ákvörðunum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær og fjölþætt reynsla af fjármálastjórnun
- Sterkir leiðtogahæfileikar, greiningar- og samstarfshæfni
- Mikil þekking á fjárhags- og greiningartólum, gagnaöryggi og stafrænum umbreytingum
- Sterk leiðtogahæfni, samskiptahæfni, færni í stefnumótun, innleiðingu stefnu og breytingastjórnun
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
- Aðgangur að orlofshúsum.
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
- Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiSölumennskaViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Fjölmiðlanefnd

Framkvæmdastjóri
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli
Icelandia

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands
Rafíþróttasamband Íslands

Fjármálastjóri Knattspyrnufélagsins Vals/Framkvæmdastjóri Hlíðarenda SES
Knattspyrnufélagið Valur

Nettó Borgarnesi - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Sviðsstjóri eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Skrifstofustjóri Vopnafjarðarhrepps
Vopnafjarðarhreppur