Deloitte
Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi með áherslu á kaup- og söluferli fyrirtækja

Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að metnaðarfullum liðsmanni sem hefur brennandi áhuga á fjármálum sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi. Við vinnum með viðskiptavinum að fjölbreyttum verkefnum og veitum virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú munt veita viðskiptavinum stefnumarkandi ráðgjöf og styður við ákvörðunartöku í umbreytingarverkefnum, sérstaklega við kaup eða sölu fyrirtækja. Þú munt bera ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, verkefnastýringu, greiningarvinnu, skýrsluskrifum og framsetningu niðurstaðna. Þú kemur einnig að öðrum verkefnum á sviðinu. 

Starfið hentar einstaklingi sem hefur góð tengsl og þekkingu á íslensku atvinnulífi. Að sama skapi skiptir máli að hafa færni til að leiða verkefni og teymi í hröðu umhverfi í samstarfi við reynda ráðgjafa og stjórnendur Deloitte.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármála eða skyldra greina 
  • Reynsla af fyrirtækjaráðgjöf, fjárfestingarbankastarfsemi eða sambærilegum störfum 
  • Góð leiðtoga- og verkefnastjórnunarreynsla 
  • Framúrskarandi greiningarhæfni og skynbragð á samhengi flókinna viðskipta 
  • Færni í samskiptum og geta til að setja fram flókið efni á skýran hátt 
  • Mjög góð kunnátta í Excel og PowerPoint 
  • Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki 
  • Forvitni, frumkvæði og lausnamiðað hugarfar 
  • Geta unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á krefjandi verkefnum 
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti 
  • Metnaður til að þróast í alþjóðlegu ráðgjafarumhverfi 
Fríðindi í starfi
  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat  
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf  
  • Styrki til foreldra  
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi  
  • Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum  
  • Starfsfólk ræktar fjölbreytt áhugamál saman þvert á félagið t.d. með hlaupahóp, fótbolta í hádeginu og að nýta leikjaherbergi til skemmtunar og samveru 
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft PowerPointPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar