
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Sérfræðingur á tæknideild á Norðursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna hönnun og undirbúningi vegaframkvæmda á Tæknideild Norðursvæðis. Starfið felst fyrst og fremst í hönnun og hönnunarstjórn vegamannvirkja og gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna.
Tæknideild Norðursvæðis fer með hönnun og undirbúning verkefna á svæðinu í nýframkvæmdum, viðhaldi og öryggisaðgerðum. Auk þess ber deildin ábyrgð á landmælingum, skipulagsmálum, leyfisveitingum o.fl.. Starfsmenn vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir Vegagerðarinnar. Norðursvæði nær frá Holtavörðuheiði að Biskupshálsi á Möðrudalsöræfum og upp á miðhálendi. Starfsstöðin er á Akureyri eða Sauðárkróki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun vegamannvirkja, allt frá frumdrögum til verkhönnunar.
- Gerð útboðsgagna fyrir ráðgjöf og verklegar framkvæmdir.
- Gerð kostnaðaráætlana.
- Hönnunarstjórn.
- Hönnunarrýni.
- Magnreikningar.
- Samráð við hagsmunaaðila við undirbúning framkvæmda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðimenntun, eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og kunnátta í notkun teiknikerfa (Cad) æskileg.
- Reynsla af hönnun samgöngumannvirkja er æskileg.
- Reynsla af verkefnisstjórn er æskileg.
- Góð tölvukunnátta.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Góð samskiptafærni.
- Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku.
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Borgarsíða 8, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta

Sérfræðingur í stofnkerfum
Míla hf

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Landsvirkjun