

Frístundaleiðbeinandi óskast í félagsmiðstöðina Bólið
Langar þig í starf þar sem þú hefur raunveruleg áhrif? Þar sem samskipti, gleði og virðing eru grunnurinn að öllu starfi? Þá gæti starf í Bólinu verið fyrir þig.
Í félagsmiðstöðinni Bólinu í Mosfellsbæ vinnum við af þeirri trú að öll ungmenni eigi skilið að eiga stað þar sem þau tilheira og mæta virðingu. Við leggjum áherslu á að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem ungmenni fá tækifæri til að blómstra, efla styrkleika sína og taka virkan þátt í starfi Bólsins.
Við leitum að öflugum frístundaleiðbeinanda til starfa í 70–100% starfshlutfalli, eftir samkomulagi. Starfið er að mestu í dagvinnu, ásamt 1–2 kvöldvöktum í viku.
Af hverju að vinna í Bólinu?
• Virðing er leiðarljósið – í samskiptum við ungmenni, samstarfsfólk og foreldra
• Traust og tengslamyndun eru hjartað í starfinu
• Sköpun og frumkvæði fá að njóta sín – góðar hugmyndir fá pláss
• Sterk liðsheild og góður starfsandi einkenna vinnustaðinn
• Gefandi starf þar sem þú sérð áhrifin sem þú hefur á hverjum degi
Helstu verkefni:
• Skipulagning og framkvæmd félags- og frístundastarfs fyrir ungmenni
• Virk þátttaka í daglegu starfi félagsmiðstöðvarinnar
• Að byggja upp jákvæð tengsl og vera fyrirmynd í samskiptum
• Þátttaka í viðburðum, verkefnum og þróun starfsins
• Samstarf við samstarfsfólk, skóla og aðra hagaðila
Við leitum að einstaklingi sem:
• Hefur áhuga og metnað til að vinna með ungmennum
• Trúir á mikilvægi virðingar, jákvæðra samskipta og þátttöku
• Er ábyrgur, hlýr og býr yfir góðri samskiptahæfni
• Er sjálfstæður í vinnubrögðum en á auðvelt með teymisvinnu
• Hefur frumkvæði og löngun til að skapa öflugt starf
Vertu hluti af Bólinu
Ef þú vilt vinna á stað þar sem mannleg tengsl skipta máli og þar sem starf með ungmennum byggir á virðingu, trausti og gleði – þá viljum við heyra frá þér.
Íslenska










