Krikaskóli
Krikaskóli
Krikaskóli

Verkefnastjóri frístundar í Krikaskóla

Verkefnastjóri frístundar óskast í Krikaskóla fyrir skólaárið 2026-27

Krikaskóli í Mosfellsbæ leitar að verkefnastjóra í frístund.

Frístundastarf Krikaskóla er rekið í beinum tengslum við skólann og býður upp á vistun fyrir börn í 1.-4.bekk. Frístundastarf í Krikaskóla er þrískipt, fyrir kennslu að morgni, í hádegi og að loknum skóla.

Starf verkefnastjóra frístundastarfs felur m.a. í sér skipulag og daglegan rekstur, auk samstarfs við foreldra, starfsfólk Krikaskóla og aðra aðila vegna íþrótta- og tómstundastarfs.

Krikaskóli er leik- og grunnskóli og starfsemin tekur mið af Menntastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Í skólanum eru á hverjum tíma um 200 börn á aldrinum 2ja-9 ára. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér stefnu skólans á heimasíðu hans.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Ráðið verður í stöðu verkefnastjóra frístundar frá og með 1.ágúst 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber faglega ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og daglegri stjórnun frístundastarfs
  • Verkstýrir stuðningsfulltrúum, veitir faglegan stuðning og skiptir verkum milli starfsmanna
  • Er í nánu samstarfi við skólastjórnendur, foreldra/forráðamenn
  • Sér um skráningar í Völu
  • Ber ábyrgð á að öryggisreglur séu virtar og stuðlar að vellíðan barna
  • Fylgist með því að nauðsynleg leikföng og búnaður sé til staðar
  • Sér um reikningagerð fyrir frístund
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldis- og menntunarfræði eða sambærileg menntun
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Sunnukriki 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar