Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

Ávísun á farsæld - Verkefnastjóri nýsköpunar í þágu barna

Ávísun á farsæld er nýsköpunar- og þróunarverkefni í þágu farsældar barna á Suðurnesjum, sem leitt af Farsældarráði Suðurnesja. Verkefnið tengir saman reglubundnar skimanir skólahjúkrunarfræðinga, þjónustu heilbrigðiskerfisins, skólaþjónustu, velferðarþjónustu og vettvang frístunda og íþrótta í samhæfða heild, með það að markmiði að tryggja snemmtækan stuðning í nærumhverfi barna.

Verkefnið byggir á farsældarlögum og er unnið í samstarfi fjögurra sveitarfélaga, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og fjölmargra annarra hagaðila, undir handleiðslu farsældarráðs Suðurnesja.

Starfið er tvíþætt. Annars vegar felur það í sér verkstjórnun, skipulagningu, samhæfingu og eftirlit með framkvæmd verkefnisins. Hins vegar vinnur verkefnastjóri beint með börnum og fjölskyldum sem tengslaþjálfi að hluta, sem tryggir nána tengingu við raunveruleika þeirra sem verkefnið þjónar.

Verkefnastjóri ber beina ábyrgð á verkstjórn, leiðsögn og faglegri þróun tengslaþjálfa. Í því felst úthlutun verkefna, eftirlit með framkvæmd og þjálfun starfsfólks í starfi. Einnig ber verkefnastjóri ábyrgð á gagnasöfnun, skýrslugerð og að tryggja að framvinda sé í samræmi við verkáætlun.

Þróun og innleiðing Ávísunar á farsæld er styrkt af Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Um er að ræða fullt starf og tímabundna ráðningu til tveggja ára.

Helstu verkefni og ábyrgð

Bera ábyrgð á daglegri stjórnun og framkvæmd verkefnisins í samræmi við verkáætlun og markmið.

Veita faglega handleiðslu og leiðsögn til tengslaþjálfa sem starfa á vegum verkefnisins.

Sinna hlutverki tengslaþjálfa að hluta, vinna beint með börnum og fjölskyldum þeirra.

Byggja upp og viðhalda samstarfsneti við skóla, heilbrigðisþjónustu, vettvang íþrótta og tómstunda og aðra þjónustuveitendur.

Þróa og innleiða ávísunarkerfi fyrir tómstundir, eflingu félagsfærni og geðheilsu barna og ungmenna.

Hafa yfirumsjón með framvindu, öflun gagna og skila skýrslum til farsældarráðs Suðurnesja.

Skipuleggja og halda fundi með samstarfsaðilum, foreldrum og öðrum hagaðilum.

Tryggja að verkefnið sé í samræmi við farsældarlög og stefnu stjórnvalda um farsæld barna.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólanám á framhaldsstigi í tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldis- og menntunarfræði, félagsráðgjöf, sálfræði eða skyldu sviði. Einnig kemur til greina aðili með BA/BS-próf en mikla starfs- og stjórnunarreynslu á fagsviðinu.

Mikill kostur ef umsækjandi hefur lokið diplómanámi í farsæld við Háskóla Íslands.

Víðtæk þekking og reynsla af innleiðingu farsældarlaga á sveitarstjórnarstigi, t.d. sem tengiliður farsældar, málstjóri eða sambærilegu starfi með börnum og ungmennum.

Umfangsmikil reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.

Sérstaklega góð færni í samskiptum við börn og ungmenni og reynsla af að vinna með fjölbreyttum hópum.

Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.

Góð enskukunnátta.

 

Aðrar hæfniskröfur:

Hreint sakavottorð.

Sveigjanleiki varðandi vinnutíma, fundir geta fallið utan hefðbundins vinnutíma.

Farsæld barna

Velferð barna

Sérfræðingur

Verkefnastjórnun

Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skógarbraut 945, 235 Reykjanesbær
Tjarnabraut 5, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar