Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum

Auglýst er eftir metnaðarfullum teymisstjóra í sértækt húsnæðisúrræði í Hólmasundi 2. Um er að ræða afleysingu í eitt ár.

Um 100% starf er að ræða þar sem teymisstjóri vinnur 50% fagstarf í dagvinnu og 50% vaktavinnustarf á dag-, kvöld- og helgarvöktum.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Hlutverk kjarnans er að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og auka lífsgæði íbúa með því að efla færni þeirra til að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi, innan og utan heimilis.

Starfið er bæði krefjandi og skemmtilegt, en þjónustan tekur mið að því að mæta þörfum íbúa út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Starfið felur í sér líkamlega umönnun. Rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti við íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ábyrgð, umsjón með framkvæmd einstaklingsbundinna þjónustuáætlana og einstaklingsáætlana og leiðsögn til starfsfólks.
  • Auka lífsgæði og sjálfstæði þjónustunotenda, efla færni á öllum sviðum, stuðla að jákvæðum samskiptum og jákvæðri sjálfsmynd.
  • Stýrir teymum þjónustunotenda og ber ábyrgð á útdeilingu verkefna.
  • Þátttaka í þróunar- og umbótavinnu varðandi faglegt starf.
  • Stuðlar að og tekur þátt í notendasamráði og þverfaglegu samstarfi, bæði innan og utan Reykjavíkurborgar.
  • Stuðar að jákvæðum samskiptum við þjónustunotendur, aðstandendur og annað samstarfsfólk.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á þjónandi leiðsögn, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu.
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með flóknar og fjölbreyttar þjónustuþarfir.
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með fatlanir er kostur.
  • Þekking og reynsla af myndrænu skipulagi er æskileg.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta. B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort - bókasafnskort og frítt á söfn
  • Samgöngusamningur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hólmasund 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar