Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í íbúðakjarna Vallengi 2

Laus staða teymisstjóra á íbúðarkjarna í Grafarvogi. Staðan er 100% og erum blandaðar vaktir að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Við auglýsum eftir framsýnum og metnaðarfullum teymisstjóra til starfa í búsetukjarna fyrir fólk með einhverfu og skyldar raskanir. Um er að ræða 100% starf, þar sem unnið er dag, kvöld og helgarvaktir. Þjónustan miðar að því að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Í boði er spennandi starf í íbúðarkjarna þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf. Í Vallengi er góður starfsandi og þar starfar samheldinn og jákvæður hópur fólks með fjölbreytta menntun og þekkingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Bera faglega ábyrgð og hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi.

· Stýra daglegum störfum annarra starfsmanna í samráði við forstöðumann.

· Veita leiðsögn og taka virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf.

· Gera einstaklingsáætlanir í samvinnu við íbúa, starfsmenn og forstöðumann.

· Sjá um bókhald fyrir íbúa í sínu teymi

· Tryggja að samskipti við aðstandendur séu góð

· Tryggja að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

· Hvetja og styðja íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, leiðbeina og aðstoða við athafnir daglegs lífs, heimilishalds og daglegra starfa.

Menntunar- og hæfniskröfur

 Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda

· Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum

· Reynsla af starfi með einstaklingum með hegðunarvanda æskileg

· Reynsla af stjórnun er skilyrði

· Afburðahæfni í mannlegum samskiptum

· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

· Góð almenn tölvukunnátta

· Bókhaldskunnátta er æskileg

· Reynsla af því að gera einstaklingsáætlanir er æskileg

· Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)

· Ökuréttindi B

· Hreint sakarvottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Vegna sérstakra aðstæðna, þá eru kvenkyns umsækjendur hvattir til að sækja um.

Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vallengi 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar