

Félagsráðgjafi/Ráðgjafi - sérþekking tengd fötlun Í loftinu
Laust er til umsóknar starf Félagsráðgjafa/ráðgjafa í Barna –og fjölskyldudeild á Norðurmiðstöð. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi með áhuga, þekkingu og reynslu tengt ráðgjöf við fötluðu börn og fjölskyldur þeirra.
Norðurmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu við börn, fjölskyldur og skóla. Í boði er vinna í málefnum barna, skóla og fjölskyldna með metnaðarfullum hópi fagmanna eins og félagsráðgjöfum, kennsluráðgjöfum, sálfræðingum, hegðunarráðgjöfum og talmeinafræðingum.
Verkefni Félagsráðgjafa/ráðgjafa taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu, Félagsráðgjafi/ráðgjafi er hluti af þverfaglegu teymi sem sinnir ráðgjöf og stuðningi við fötluð börn og fjölskyldur þeirra í deild barna-og fjölskyldumála. Leitast er eftir að ráða einstakling með mikla þekkingu á einhverfu og stuðningsþörfum barna sem eru einhverf.
- Verkefni Félagsráðgjafa/ráðgjafa taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu, Félagsráðgjafi/ráðgjafi er hluti af þverfaglegu teymi sem sinnir ráðgjöf og stuðningi við fötluð börn og fjölskyldur þeirra í deild barna-og fjölskyldumála.
- Leitast er eftir að ráða einstakling með mikla þekkingu á einhverfu og stuðningsþörfum barna sem eru einhverf.
- Félagsráðgjafi/ráðgjafi veitir fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra ráðgjöf s.s. vegna fötlunar, félagslegra aðstæðna, uppeldi barna, fjölmenningar og annað sem fjölskyldan kann að þurfa stuðning með.
- Félagsráðgjafi/ráðgjafi sérhæfir sig í og hefur yfirsýn yfir úrræði og stuðning fyrir einhverf börn með umfangmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldur þeirra.
- Félagsráðgjafi/ráðgjafi veitir einstaklingsmiðaðan stuðning sem miðar að því að tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu eftir því sem við á og þörf krefur.
- Veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns. Ber ábyrgð á málstjórn í stuðningsteymum samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
- Vinnur mat á þjónustuþörfum barns og fjölskyldu þess. Gerir stuðningsáætlun og leggur mat á árangur.
- Samstarf og samvinna við lykilstofnanir og hagsmunasamtök í málefnum barna.
- Háskólamenntun á sviði félags-, mennta- og/eða heilbrigðisvísinda s.s. Þroskaþjálfi, fötlunarfræði, sálfræði, starfsréttindi til að starfa sem félagsráðgjafi.
- Þekking og reynsla af ráðgjöf við fjölskyldur fatlaðra barna.
- Þekking og reynsla í starfi með fötluðum börnum.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og reynsla á þverfaglegri teymisvinnu.
- Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matsramma
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Þekking og reynsla af starfi á sviði velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar eða öðru sveitarfélagi er kostur
- Þekking eða reynsla af því að starfa með fólki af erlendum uppruna er kostur.
36 stunda vinnuviku·
Fjölskylduvænan vinnustað.
ÍTR kort eftir mánuð í starfi sem veitir meðal annars ókeypis aðgang í Sundlaugar Reykjavíkur.
Afslátt á menningarkorti Reykjavíkurborgar
Íslenska

































