

VISS, vinnu og hæfingarstöðvar á Selfossi óskar eftir að ráða þroskaþjálfa
VISS, vinnu og hæfingarstöðvar á Selfossi óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í 80% frá 1. maí 2026.
VISS er vinnustaður sem tryggir vinnu og virkni úræði fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu ásamt því að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðað og sveigjanlega og faglega þjónustu. Fatlað starfsfólk á VISS er fjölbreyttur hópur sem á það sameiginlegt að þurfa stuðning í vinnunni.
Markmiðið með starfinu er að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra ásamt öryggi þeirra á vinnustaðnum.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Efla og viðhalda faglegri samfellu og stuðla að þróun þjónustugæða.
- Stuðningur við annað starfsfólk í faglegum vinnubrögðum.
- Tekur þátt í forvarnavinnu og snemmtækri íhlutun.
- Styður við auknar kröfur og fjölgun verkefna vegna gæðaviðmiða innra eftirlits.
- Veitir starfsmönnum með fötlun aðstoð og leiðbeiningar er varðar vinnu og virkni.
- Veitir starfsmönnum með fötlun persónulegan stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu.
- Veita stuðning og umönnun með þarfir starfsmannsins í huga.
- Fylgir eftir einstaklings-/ þjónustuáætlunum og vinnuferlum í samvinnu við yfirmann.
- Skipuleggur og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
- Þroskaþjálfamenntun
- Reynslu af starfi með fötluðu fólki
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Almenn tölvu kunnátta æskileg
- Góð íslenskukunátta
Íslenska





