Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Verkefnastjóri Flexið – sérstuðningur Zelsíuz

Félagsmiðstöðin Zelsíuz leitar að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra velferðarúrræðis í félagsmiðstöðina Zelsíuz. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, velferð og einstaklingsmiðaðan stuðning.

Starfshlutfall: 70-100%

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur metnað fyrir því að veita framúrskarandi stuðning í daglegu starfi. Verkefnastjóri Flexisins gegnir mikilvægu hlutverki í að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi. Tekur virkan þátt í daglegu og faglegu starfi félagsmiðstöðvarinnar og leiðir hópstarf í samstarfi við notendur, samstarfsfólk og stjórnendur.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Umsjón og stuðningur við einstaklinga sem þurfa sértækan stuðning

·         Skipulag og eftirfylgni með daglegum verkefnum

·         Umsjón og skipulagning á hópastarfi

·         Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra fagaðila eftir því sem við á

·         Þátttaka í þróun þjónustu og umbótum í starfi

·         Skráning og miðlun upplýsinga samkvæmt verklagi

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Hefur háskólamenntun á sviði tómstunda-, uppeldis- eða velferðar (eða aðra sambærilega menntun)

·         Hefur áhuga og innsæi í æskulýðsstarf og velferð ungs fólks

·         Býrð yfir sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum

·         Sýnir frumkvæði og fagmennsku í verkefnum

·         Hefur góða tölvukunnáttu og framúrskarandi samskiptahæfni

·         Hefur reynslu af starfi í félagsmiðstöðvum eða frístundaheimilum (æskilegt)

Fríðindi í starfi

·         Skemmtilegt og skapandi starf í framsæknu og fjölbreyttu umhverfi

·         Tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og þróun félagsmiðstöðvar

·         Gott teymisstarf og þverfaglegt samstarf innan sveitarfélagsins

·         Sveigjanleika og stuðning í starfi

Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar