

Félagsráðgjafi í deild virkni og ráðgjafar á Vesturmiðstöð
Vesturmiðstöð leitar að metnaðarfullum og öflugum félagsráðgjafa í Virkni og ráðgjöf á Vesturmiðstöð .
Á Vesturmiðstöð er veitt félagsleg ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna, fatlaðs fólks, eldra fólks auk annarrar velferðarþjónustu s.s heimastuðningur og heimahjúkrun. Félagsráðgjafi mun einna helst sinna félagslegri ráðgjöf, virknimálum og öðrum verkefnum sem snúa að þjónustu við borgarbúa.
Miðstöðin er leiðandi í þjónustu við heimilislausa með miklar og flóknar þjónustuþarfir, umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk. Á Vesturmiðstöð sameinast velferðarþjónusta og skóla- og frístundaþjónusta í nærumhverfi barna, ungmenna og fjölskyldna.
Vesturmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu í hverfi borgarinnar og þverfaglegu samstarfi í hverfi og milli hverfa. Í boði er vinna með metnaðarfullum hópi annarra fagmanna.
Um fullt starf er að ræða og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
- Veita félagslega ráðgjöf og stuðning til einstaklinga.
- Greining á þjónustuþörf og ráðgjöf m.a. varðandi fjárhagsaðstoð, húsnæðismál og þeirrar þjónustu og stuðningsúrræða sem eru í boði bæði hjá Reykjavíkurborg og hjá öðrum.
- Sinna verkefnum sem taka til almennrar félags- og velferðarþjónustu og þróunar á þjónustu.
- Taka þátt í þverfaglegu samstarfi innan og utan velferðarsviðs.
- Starfa í samræmi við lög, reglur og stefnu Reykjavíkurborgar.
- Önnur tilfallandi störf.
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
- Þekking og reynsla af félagslegri ráðgjöf, vinnslu og meðferð mála einstaklinga
- Þekking og reynsla af velferðarþjónustu
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Íslenskukunnátta C1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Sveigjanlegur vinnutími
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Menningarkort Reykjavíkur
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
- Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar
Íslenska



























