

Sjúkraliði á göngudeild þvagfæra
Við leitum eftir áhugasömum sjúkraliða til starfa á göngudeild þvagfæra 11A við Hringbraut. Um er að ræða fjölbreytt, spennandi og gefandi dagvinnustarf sem snýr m.a. að móttöku sjúklinga, undirbúningi fyrir aðgerðir og vinnu inn á aðgerðarherbergi.
Starfsemin einkennist af teymisvinnu, góðum starfsanda, faglegum metnaði og sterkri liðsheild. Göngudeildin er framsækin deild og markvisst er unnið að umbótum og framþróun í starfi. Auk þess eru spennandi verkefni í stafrænni þróun og þróun fjarþjónustu innan dag- og göngudeilda.
Á göngudeild þvagfæra er veitt sérhæfð og fjölbreytt göngudeildarþjónusta við sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum. Við veitum meðferð í nýrnasteinbrjótnum, sinnum þvaglekamóttöku auk þess fara fram ýmsar rannsóknir, greiningar og meðferðir á sjúkdómum í þvagfærum. Aukning er á skurðaðgerðum sem eru að þróast og færast yfir á göngudeildina. Lögð er rík áhersla á ráðgjöf og kennslu utan sem innan Landspítala.
Við tökum vel á móti sjúkraliðum, reynslumiklum sem og nýútskrifuðum og veitum einstaklingbundna aðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða.
Starfshlutfall er samkomulag (80-100%), unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. júní 2026 eða eftir samkomulagi. Áhugasamir hafi samband við Huldu Pálsdóttur, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska













































