

Sjúkraliði á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Ertu framsækin/nn? Hefurðu áhuga á nýsköpun? Ertu drífandi?
Taktu þátt í uppbyggingu nýrrar starfseiningar á Landspítala. Um er að ræða undireiningu flæðisdeildar spítalans og mikilvægan hlekk í þjónustu við sjúklinga þar sem áhersla er lögð á skilvirkni og farsæl lok sjúkrahúsdvalar. Mikil uppbygging er fyrirhuguð. Deildin verður opin frá kl. 8-20 alla daga vikunnar.
Við sækjumst eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum sjúkraliðum sem hafa brennandi áhuga á áskorunum í síbreytilegu spítalaumhverfi. Einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun og framfarir í þjónustu Landspítala. Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra fagaðila.
Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2026. Unnið er í vaktavinnu.
Þar sem um er að ræða tilraunarverkefni er ráðning tímabundin til eins árs.
Íslenska











































