

Hjúkrunarfræðingur á legudeild minnisraskana á Landakoti
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á legudeild minnisraskana. Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á öldrunarhjúkrun, umbótastarfi og þverfaglegu samstarfi. Starfið hentar vel þeim sem vilja vaxa í starfi, þróa faglega sýn í hlýlegu starfsumhverfi.
Legudeild minnisraskana L4 á Landakoti er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingadeild opin sjö daga vikunnar. Starfsemin miðar að þjónustu við sjúklinga með heilabilunarsjúkdóma. Meginmarkmiðið er að auka lífsgæði með því að skapa öryggi og veita umhyggju í rólegu umhverfi þar sem þjónusta við sjúklinga og fjölskyldu byggir á þekkingu og framþróun.
Meðferðin miðar að því að auka hæfni einstaklings til að takast á við breyttar aðstæður og viðhalda vitrænni og líkamlegri færni. Í samvinnu við einstaklinga og aðstandendur er leitað lausna sem hæfa hverjum og einum.
Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun. Starfið er laust 1. maí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum og er starfshlutfall 80-100% eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Hjördísi Halldóru, deildarstjóra.
Íslenska
Enska




























































