Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Hrafnista Laugarási

Ert þú samviskusamur og skipulagður hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri? Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun?Þá erum við mögulega að leita að þér.Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri stendur hjúkrunarvaktir og er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans og aðstoðar við ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildar. Um er að ræða 30 íbúa deild. Aðstoðarhjúkrunardeildarstjórar eru sömuleiðis með ákveðin fagleg ábyrgðarsvið á deildinni og er vaktafyrirkomulag eftir samkomulagi.


Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrun
  • Aðstoð við stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
  • Skipulag á störfum starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
  • Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
  • Ráðgjöf og fræðsla til þjónustuþega og aðstandenda
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af stjórnun kostur
  • Reynsla af RAI mælitækinu kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun
Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar