

Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Áhugasamur og metnaðarfullur hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á legudeild lyndisraskana á Kleppi.
Deildin er opin legudeild og dagdeild sem sinnir meðferð einstaklinga með lyndisraskanir og fjölþættan vanda. Deildin vinnur einnig í nánu samstarfi við meðferðarteymi göngudeildar lyndisraskana. Á deildinni er unnið fjölbreytt og sérhæft starf sem einkennist af góðum starfsanda, virkri og stöðugri framþróun og eru ótal tækifæri til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Við leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að hafa metnað og áhuga á að starfa við geðhjúkrun fyrir einstaklinga með alvarlegar geðraskanir
Ráðið er í starfið frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi og er starfið 70-100%. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Íslenska




























































