

Aðstoðarmaður deildarstjóra á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Við leitum að einstaklingi sem hefur yfirsýn, sýnir frumkvæði og brennur fyrir að skapa jákvæða vinnustaðamenningu.
Starf aðstoðarmanns deildarstjóra er lifandi og fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á verkefnastjórnun og felur í sér skipulagslega ábyrgð, mönnun og þátttöku í umbótaverkefnum, auk víðtækra samskipta við skjólstæðinga, aðstandendur, starfsfólk, stoðþjónustur og stjórnendur. Viðkomandi vinnur náið með deildarstjóra, aðstoðardeildastjórum og er partur af stjórnendateymi deildar.
Sérhæfð endurhæfingardeild aldraðra er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Deildin rúmar 16-18 sjúklinga til endurhæfingar og einkennist af góðum starfsanda og mikilli samheldni innan hópsins. Deildin var endurnýjuð 2020, vinnuaðstæður góðar og deildin vel búin tækjum. Áhersla er lögð á gott og gleðiríkt andrúmsloft þar sem hver og einn nýtir sína styrkleika. Unnið er saman í teymisvinnu og við fögnum nýjum röddum, sjónarhornum og hugmyndum.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar, æskilegt að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Sigurlaugu, deildarstjóra.
Enska
Íslenska




























































