Leikskólinn Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Deildarstjóra vantar í leikskólann Nóaborg

Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti 11, óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf. Um er að ræða deildarstjórastöðu á deild eldri barna og er starfið laust frá 1. apríl eða eftir nánara samkomulagi.

Nóaborg er fjögurra deilda leikskóli og þar dvelja að jafnaði 74 börn. Í leikskólanum eru tvær eldri deildir með 21 barni á hvorri deild og svo tvær yngri deildir með 16 börnum á hvorri deild. Mikil endurnýjun á húsnæði leikskólans hefur átt sér stað á undanförnum árum og er öll vinnuaðstaða góð.

Leikskólinn er staðsettur rétt ofan við Hlemm og í næsta nágrenni við Klambratún sem býður upp á mikla möguleika varðandi leik og starf. Við leikum okkur með læsi og stærðfræði, vinnum markvisst með Lubba námsefnið og erum þátttakendur í þróunarverkefni um tónlist í leikskóla. Þá erum við í auknum mæli að vinna með flæði á milli deilda.

Einkunnarorð Nóaborgar eru: Leikum-Lærum-Njótum

Helstu verkefni og ábyrgð

-Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

· Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni

· Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar

· Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun

· Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur

-Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara

· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg

· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

· Góð íslenskukunnátta

· Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

-Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi
  • Sundkort
  • Menningarkort og bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Frítt fæði
  • Forgangur að leikskólaplássi fyrir starfsmannabörn
Auglýsing birt6. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stangarholt 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar