
Leikskólin Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt er sex deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára og er opnunartími skólans er 7:45- 16:15 alla virka daga.
Leikskólinn starfar í anda Uppbyggingarstefnunnar og með ART. Ásamt vinnu með farsæld barna í samvinnu við Fjarðabyggð.
,,Allir geta eitthvað, enginn getur allt" eru einkunnarorð skólans og leiðarljós okkar í öllu starfi. Því fær hver og einn notið sinna styrkleika því þannig byggjum við upp sterka sjálfsmynd.
Við sem erum í Lyngholti erum sjálfstæð og glöð og berum virðingu fyrir umhverfi okkar. Við tileinkum okkur jákvæðni, gleði, hreinskiptni og virðingu.

Leikskólakennari við Leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Lyngholt er rúmlega 80 nemenda skóli sem skiptist á sex deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi
Leikskólinn Sunnufold

Deildastjóri í Sunnufold
Leikskólinn Sunnufold

Leikskólakennari / leiðbeinandi í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Leiðbeinendur í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Leitum af drífandi leikskólakennurum og leiðbeinendum í 50% - 100% starfshlutföll út skólaárið.
Leikskólinn Leikholt

Deildarstjóri á Dauðhreinsun
Landspítali

Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Leikskólakennari í Fífuborg
Reykjavíkurborg: Skóla- og frístundasvið

Tómstundafulltrúi
Vesturbyggð

Leikskólinn Aðalþing - (sér)kennsla
Aðalþing leikskóli