

Leikskólakennari í Fífuborg
Laust er til umsóknar starf leikskólakennara í Fífuborg.
Fífuborg er fjögurra deilda leikskóli við Fífurima í Grafarvogi með sterkan kjarna af fagfólki.
Gildi leikskólans eru virðing, heilbrigði og gleði. Í leikskólanum er stuðst við kenningar John Dewey, Caroline Pratt og Lev Vigotsky en hugmyndafræði þeirra á það sameiginlegt að líta á barnið sem skapandi, virkan og hugsandi einstakling sem lærir af eigin reynslu, virkni og áhuga. Megináherslur í starfi leikskólans eru bernskulæsi, félagsfærni, umhverfismennt og lýðræði. Rík áhersla er lögð á að raddir barnanna heyrist og að þau hafi áhrif á umhverfi sitt.
Í Fífuborg er unnið með vináttuverkefni Barnaheilla sem byggir m.a. á því að efla félagsfærni og byggja upp jákvæð samskipti. Hallsholt, grenndarsvæði leikskólans bíður uppá tækifæri til útikennslu og skemmtilegra vettvangsferða.
Fífuborg er Grænfánaleikskóli og hlaut hann hvatningarverðlaun skóla- og frístundarsviðs 2019 fyrir verkefnið Ella umhverfisdúkka.
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Íslenska B1 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Menningakort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika.
Íslenska










