Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti

Heilsugæslan Efstleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna inni á island.is/starfatorg

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólahjúkrun og opin og bókuð móttaka 

  •  Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.     
      

  • Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 

  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi 

  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur 

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð 

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu 

  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur 

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki 

  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta 

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 3, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar