Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Teymisstjóri DevOps

Ert þú með góða þekkingu á upplýsingatækni og reynslu af Microsoft Azure umhverfinu?

Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig...

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum teymisstjóra til að leiða DevOps teymi hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Teymisstjóri mun starfa í umhverfi með teymum sem hafa mismunandi aðkomu að aðalskýjaumhverfi borgarinnar.

Starfið felur bæði í sér leiðtogahlutverk og tæknilega vinnu. Einnig felst í hlutverkinu að efla samstarf milli teyma, styðja við stjórnendur og skapa sameiginlega vitund teyma í tengslum við nýtingu á Microsoft Azure. Markmið starfsins er að stuðla að skilvirkri og ábyrgri nýtingu á Microsoft Azure aðalskýjaumhverfi Reykjavíkurborgar.

Viðkomandi þarf að búa yfir getu til að halda góðri yfirsýn, styðja við og hafa færni til að leiða hóp sérfræðinga.

Í teyminu verða sérfræðingar m.a. í netmálum, Kubernetes, CI/CD og Terraform. Virði teymisstjórans felst í samskiptum og samræmingu; að hafa næga yfirsýn til að spyrja réttra spurninga, taka rökstuddar ákvarðanir og halda fókus á því sem skiptir mestu máli.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem teymisstjóri DevOps munt þú...

  • Leiða og þróa Azure DevOps teymi
  • Vera aðaltengiliður milli DevOps teymisins og þróunarteyma innan Reykjavíkurborgar
  • Hafa umsjón með daglegum rekstri og öryggi Azure umhverfisins
  • Þýða þarfir rekstrar og þróunar yfir í tæknilegar ákvarðanir og forgangsröðun verkefna
  • Viðhalda og bæta innviðaforritun (Infrastructure as Code með Terraform)
  • Tryggja að öryggisstöðlum og -reglum sé fylgt
  • Tryggja að skráðum ákvörðunum um tæknilega útfærslu og ferlum sé fylgt
  • Tryggja að skjölun og vinnubrögð s.s. merking auðlinda séu samræmd
  • Starfa í nánu samstarfi við deildarstjóra tæknireksturs
  • Taka virkan þátt í skipulagningu spretta, úrlausn beiðna og framkvæmd verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
  • Leiðtogafærni og reynsla af stjórnun verkefna og teyma í upplýsingatækni
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Reynsla af breytingastjórnun er æskileg
  • Reynsla og þekking á vinnu, verklagi og þörfum þróunarteyma
  • Reynsla af DevOps hugmyndafræði
  • Reynsla og þekking á Azure, Entra ID, og Kubernetes
  • Færni í IaC og skriptum
  • Reynsla af virku kostnaðareftirliti í Azure
  • Þekking á reglum um persónuvernd og tilmælum ríkisins um skýjaumhverfi kostur
  • Góð hæfni í framsetningu á tæknilegu og flóknu efni á einfaldan hátt
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð hugsun
  • Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar