Festi
Festi
Festi

Netöryggisstjóri

Festi leitar að öflugum netöryggissérfræðingi í upplýsingatæknideild félagsins. Við leitum að metnaðarfullum tæknisérfræðingi með brennandi áhuga á netöryggi til starfa í öflugu rekstrarteymi. Viðkomandi mun hafa umsjón með netöryggismálum Festi og dótturfélaga og taka þátt í að styrkja og þróa netöryggi samstæðunnar.

Festi er eignarhaldsfélag leiðandi fyrirtækja sem gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Starfsemi móðurfélagsins snýr að fjárfestingum og stoðþjónustu við dótturfélögin ELKO, Krónuna, N1, Lyfju, Yrki fasteignir og Bakkann vöruhótel.<br>Innan upplýsingatæknideildar starfa sérfræðingar sem þróa og reka lausnir sem margir þekkja, svo sem vefverslun ELKO, snjallverslun Krónunnar, Krónu appið, N1 vefverslun og N1 appið.

Helstu verkefni

  • Umsjón með öryggislausnum og netöryggisverkfærum
  • Viðhald viðbragðsáætlana
  • Skipulagning viðbragðsæfinga
  • Umsjón með fræðslu í netöryggismálum
  • Samskipti við þjónustu- og samstarfsaðila
  • Stuðningur við kerfisstjóra
  • Markviss vinna að auknu öryggi tölvuumhverfis

Hæfniskröfur

  • Minnst fimm ára reynsla af kerfisstjórn
  • Reynsla og góð þekking á netöryggismálum
  • Þekking á rekstri netþjóna- og skýjaumhverfa
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni
  • Háskóla- eða tæknimenntun sem nýtist í starfi

Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar starfsfólks fá að njóta sín. Boðið er upp á sveigjanleika í starfi og lögð áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og felur velferðarpakki félagsins í sér fjölbreytta heilsueflandi þjónustu. Starfsfólk nýtur jafnframt góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026.

Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir, forstöðumaður upplýsingatækni, [email protected].

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar