Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Sumarstarf í upplýsingatækni

Mosfellsbær leitar að metnaðarfullum einstaklingi í námi í kerfisstjórnun til að sinna fjölbreyttum verkefnum í upplýsingatækni í sumar. Um er að ræða tækifæri fyrir nemanda til að öðlast hagnýta reynslu af tækjastýringu og viðhaldi á netkerfum í lifandi skólaumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er fjölbreytt og felur í sér bæði kerfisstjórnun í skýjalausnum og vinnu með vélbúnað á staðnum:

  • Tækjastýring (MDM): Sameining og skráning allra iPad skólanna í Jamf umsjónarkerfið. Uppsetning, stillingar og tryggja að öll tæki séu rétt uppfærð á skráð miðlægt.
  • Viðhald Chromebook tækja: Yfirfara og prófa Chromebook tölvur sem notaðar eru í skólastarfinu, sjá um uppsetningar (provisioning) og tryggja að þær séu tilbúnar fyrir næsta skólaár.
  • Netbúnaður og innviðir: Yfirfara tengingar í tæknirýmum. Þetta felur í sér að snyrta snúrur í skápum, merkja þær og rekja (trace) tengingar við svissa.
  • Önnur tilfallandi verkefni: Almenn aðstoð við notendur og viðhald á tölvubúnaði eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun: Viðkomandi sé í námi í kerfisstjórnun eða öðru sambærilegu tölvunámi.
  • Netbúnaður: Reynsla eða ríkur áhugi á netuppsetningum og netkerfum almennt er mikill kostur.
  • Vinnubrögð: Krafa er gerð um vönduð og skipulögð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að sýna nákvæmni í merkingu búnaðar og geta fylgt ferlum við tækjastýringu.
  • Frumkvæði: Geta til að vinna sjálfstætt og leysa verkefni af fagmennsku.
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar