

Sölusérfræðingur Rekstrarlausna Advania
Brennur þú fyrir ráðgjöf, vilt skapa raunverulegt virði og elskar að kynna nýjar tæknilausnir? Við leitum að liðsfélaga í öflugt söluteymi hjá Rekstrarlausnum Advania.
Við leitum að kraftmiklum, úrræðagóðum og metnaðarfullum sölusérfræðingi með reynslu á sviði upplýsingatækni. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefur tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í samstarfi við viðskiptavini og sérfræðinga.
Rekstrarlausnir Advania
Innan Rekstrarlausna starfa tæplega 200 einstaklingar við rekstur, þjónustu og ráðgjöf tengt öllu sem viðkemur tölvukerfum fyrirtækja og stofnana. Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval lausna tengt netrekstri, afritunartöku, hýsingu, öryggismálum, gervigreind og skýjalausnum.
Helstu verkefni eru meðal annars:
- Söluráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina
- Uppbygging og viðhald traustra langtímasambanda
- Undirbúningur og kynningar lausna
- Tilboðsgerð og markviss eftirfylgni
- Virkt samstarf við sérfræðinga og birgja
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur góða þekkingu á upplýsingatækni, sérstaklega á sviði hýsingar, reksturs, upplýsingaöryggis og skýjalausna
- Hefur reynslu af ráðgjöf og sölu tæknilausna
- Sýnir skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Hefur ríka þjónustulund og sterka hæfni í mannlegum samskiptum
- Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Hefur menntun sem nýtist í starfi
Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar punktana hér að ofan þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Enska
Íslenska










