Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Teymisstjóri - kerfisstjórn og vöktun

Hefur þú brennandi áhuga á ferlum, þjónustu og tækni?

Þá gæti þetta verið starf fyrir þig...

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að öflugum teymisstjóra til að leiða teymi kerfisstjórnunar og vöktunar hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Markmið starfsins er að vinna að uppbyggingu og framþróun þjónustuferla við notendur. Teymisstjóri hefur yfirsýn yfir verkefni teymisins, tölfræði þjónustunnar og tryggir að hún sér örugg, áreiðanleg, skilvirk og í samræmi við þær kröfur og væntingar sem til hennar eru gerðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem teymisstjóri kerfisstjórnunar og vöktunar munt þú...

  • Stýra og halda utan um teymið
  • Stýra verkefnum samkvæmt verklagi upplýsingatækniþjónustu
  • Bera ábyrgð á innleiðingu og utanumhaldi þjónustuferla
  • Hafa yfirsýn yfir fjármál teymisins og samþykkja reikninga
  • Taka þátt í setningu og eftirfylgni árangursmarkmiða
  • Taka þátt í samstarfshópum
  • Vera stuðningur við deildarstjóra tæknireksturs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
  • Framúrskarandi leiðtogafærni
  • Reynsla af stjórnun teyma
  • Þekking og reynsla af þjónustuferlum
  • Reynsla af fjárhagsáætlanagerð og annarri áætlanagerð
  • Hæfni til greiningar og miðlunar á gögnum
  • Haldbær tækniþekking
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu  
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar