Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu

Kennarar óskast á Hellu

Grunnskólinn Hellu auglýsir stöður kennara og umsjónarkennara á miðstigi, fyrir skólaárið 2026-2027.

Hæfnikröfur:

  • Kennaramenntun/leyfisbréf til kennslu
  • Kennslureynsla æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Í Grunnskólanum Hellu verða u.þ.b. 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027.

Aðstaða kennara og nemenda er til fyrirmyndar í nýrri skólabyggingu á Hellu.

Grunnskólinn Hellu byggir á uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“. Sú stefna gengur út á að móta umhverfi í skólum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu.
Grunnskólinn Hellu er Grænfánaskóli.

Aðstoðað verður við húsnæðisleit í nágrenninu sé þess óskað.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is

Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:

  • Sigurjón Bjarnason, skólastjóri, á netfang [email protected] eða í síma 488 7021 / 8964841
  • Kristinn Ingi Austmar Guðnas., á netfang [email protected] eða í síma 488 7022 / 8481467

Umsóknarfrestur er til 12. Maí 2026

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Útskálar 6-8, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar