Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Deildarstjóri í Sumarhús

Leikskólinn Sumarhús, nýlegir leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða deildarstjóra til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Sumarhús er fimm deilda skóli og gert ráð fyrir allt að 150 börnum á aldrinum 1-5 ára. Skólinn er á heilsubraut og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, með áherslu á næringu, hreyfing og sköpun þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls er í forgrunni. Markviss málörvun, leikurinn og lífsleikni eru einnig mikilvægir hlekkir í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling að uppbyggingu leikskólans.

Staðan er laus frá 10. ágúst 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan skólans og stýrir deildarfundum 
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
  • Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Kennslureynsla á leikskólastigi 
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót 
  • Fagleg framkoma
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar