Mánaland
Mánaland

Deildarstjóri

Viltu vera með í að móta framtíðina í Mánalandi?

Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi deildarstjóra til að bætast í okkar öfluga hóp.

Ráðið verður í fleiri en eina stöðu.

Ef þú hefur brennandi áhuga á leikskólastarfi, vilt hafa raunveruleg áhrif og starfa í alþjóðlegu og lifandi samfélagi, þá er Mánaland staðurinn fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á því að faglegt starf á deild sé í samræmi við aðalnámskrá leikskóla og stefnu skólans
  • Umsjón og ábyrgð á skipulagi,  framkvæmd og mati á deildum í samráði við aðra stjórnendur
  • Skipulag samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
  • Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu
  • Farsæl reynsla af starfi á leikskóla
  • Reynsla af stjórnun er kostur
  • Jákvæðni, sjálfstæði og sveigjanleiki
  • Opið hugarfar í tengslum við þróun skólastarf og breytingar
  • Áhugi á að vinna skemmtilegt starf með börnum
  • Rík færni til samstarfs og samskipta
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Almenn góð tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla

Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.

Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ránarbraut 7, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar