
Deildarstjóri
Deildarstjóri óskast til starfa í leikskjólann Tjörn.
Leikskólinn Tjörn byggir starf sitt á hugmyndafræði Reggio Emilia skólanna. Það sem einkennir Reggio skólana er fyrst og fremst trú á getu barna, og trú á að þau hafi vit og vilja til að taka þátt í og móta það starf sem fram fer í skólanum.
Í Tjörn er lögð áhersla á faglegt starf þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín í kærleiksríku umhverfi. Börnin eru hvött til þess að setja orð á tilfinningar. Þau setja sér sjálf markmið og meta sitt eigið nám og færni. Þau eru hvött til sjálfshjálpar eins og að klæða sig sjálf og ganga frá eftir sig því það er mikilvægt að þau fái hlutverk í daglegu starfi. Börnunum er treyst til þess að hafa áhrif á skipulagningu starfsins og hlustað er á skoðanir þeirra.
Einkunnarorð Tjarnar eru:
FRUMKVÆÐI - VINÁTTA - GLEÐI
Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
- Íslenska B1 skv. evrópska tungumálarammanum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf með möguleikann á að safna fyrir t.d. jólafrí, páskafrí og vetrarfrí
- Heilsuræktarstyrkur
- Frír matur í hádeginu sem er eldaður frá grunni í eldhúsi skólans af matreiðslumeistara
Íslenska










