

Deildarstjóri í Landakotsskóla
Landakotsskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og framsýnan deildarstjóra til starfa við almenna grunnskóladeild skólans. Um er að ræða lykilstöðu í metnaðarfullu skólasamfélagi þar sem lögð er áhersla á skapandi skólastarf, fagmennsku og framúrskarandi menntun.
Starfið felur í sér um 70% stjórnun og 30% kennslu. Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans, tekur þátt í daglegri stjórnun og veitir faglega forystu í námi og kennslu.
Um Landakotsskóla
Landakotsskóli byggir á sterkum grunni og ríkri hefð en horfir jafnframt til framtíðar með markvissri skólaþróun og nýsköpun. Skólinn er sjálfstætt starfandi grunnskóli sem lýtur sérstakri stjórn og er fyrir 1.–10. bekk, auk deildar fimm ára barna og frístundaheimilis.
Í skólanum eru um 360 nemendur í tveimur deildum:
-
almenn deild sem fylgir Aðalnámskrá og þar sem kennt er á íslensku
-
alþjóðleg deild sem fylgir Cambridge námskrá og þar sem kennt er á ensku
Við skólann starfa um 50 kennarar og 30 aðrir starfsmenn. Skólasamfélagið er fjölbreytt, alþjóðlegt og einkennist af góðum starfsanda, metnaði og sterkri liðsheild.
Lögð er rík áhersla á listkennslu og skapandi starf þvert á faggreinar, samhliða öflugri kennslu í kjarnagreinunum íslensku, tungumálum og stærðfræði. Samskipti, samvinna, sköpun, framtíðarhugsun og vellíðan eru leiðarljós í skólastarfinu. Markmið skólans er að nemendur nái að vaxa og dafna í skólanum, verði undirbúnir til að ákvarða eigin framtíð og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.
-
Veita faglega forystu í námi, kennsluháttum og skólaþróun
-
Bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd kennslu innan deildar
-
Hafa umsjón með faglegum ákvæðum aðalnámskrár
-
Leiða þróun og nýbreytni í kennsluháttum
-
Leiða verkefnastjórnun og umbótastarf í skólanum
-
Stuðla að jákvæðum skólabrag og sinna agamálum
-
Annast samskipti við nemendur, kennara og foreldra
-
Taka þátt í stefnumótun og þróun skólastarfs
-
Leiða samstarf kennara og halda utan um stigsfundi
-
Styðja við starfsfólk og efla góðan starfsanda
-
Vinna náið með skólastjóra og öðrum stjórnendum
-
Kennaramenntun og gilt leyfisbréf til kennslu
-
Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er nauðsynleg
-
Reynsla og menntun af stjórnunar- eða þróunarstarfi er æskileg
-
Leikni í fjölbreyttum kennsluaðferðum og góð tæknikunnátta
-
Þekking á leiðsagnarnámi er mikilvæg
-
Hæfni til að leiða teymi og efla samstarf
-
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og fagmennska
-
Áhugi á þróun og eflingu skólastarfs
-
Hreint sakarvottorð
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
Við bjóðum
-
Fjölbreytt starf í skapandi og metnaðarfullu umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun
-
Öflugt alþjóðlegt samfélag fagfólks á sviði menntunar
-
Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skólaþróun
Íslenska
Enska










