Landakotsskóli
Landakotsskóli
Landakotsskóli

Íslenskukennari á unglingastigi

Landakotsskóli auglýsir eftir íslenskukennara í 8.-10. bekk, frá 1. ágúst 2026.

Landakotsskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullum íslenskukennara á unglingastigi. Um er að ræða starf í öflugu skólasamfélagi þar sem lögð er áhersla á skapandi skólastarf, fag-mennsku og framúrskarandi menntun.

Um 100% starf er að ræða.

Um Landakotsskóla

Landakotsskóli byggir á sterkum grunni og ríkri hefð en horfir jafnframt til framtíðar með markvissri skólaþróun og nýsköpun. Skólinn er sjálfstætt starfandi grunnskóli sem lýtur sérstakri stjórn og er fyrir 1.–10. bekk, auk deildar fimm ára barna og frístundaheimilis.

Í skólanum eru um 360 nemendur í tveimur deildum:

  • almenn deild sem fylgir Aðalnámskrá og þar sem kennt er á íslensku

  • alþjóðleg deild sem fylgir Cambridge námskrá og þar sem kennt er á ensku

Við skólann starfa um 50 kennarar og 30 aðrir starfsmenn. Skólasamfélagið er fjölbreytt, alþjóðlegt og einkennist af góðum starfsanda, metnaði og sterkri liðsheild.

Lögð er rík áhersla á listkennslu og skapandi starf þvert á faggreinar, samhliða öflugri kennslu í kjarnagreinunum íslensku, tungumálum og stærðfræði. Samskipti, samvinna, sköpun, framtíðarhugsun og vellíðan eru leiðarljós í skólastarfinu. Markmið skólans er að nemendur nái að vaxa og dafna í skólanum, verði undirbúnir til að ákvarða eigin framtíð og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í íslensku frá miðstigi upp í 10. Bekk. 

  • Samstarf við kennara á unglingastigi 

  • Virkt samstarf við foreldra um nám, líðan og velferð nemenda.  

  • Samvinna við starfsfólk skólans um fagleg málefni og þróun skólastarfs. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf fyrir kennslu í grunnskóla. 

  • Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er æskileg. 

  • Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi. 

  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með unglingumá fjölbreyttan og skapandi hátt.

  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. 

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. 

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði 

  • Góð enskukunnátta er æskileg 

  • Hreint sakavottorð 

Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt starf í skapandi og metnaðarfullu umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun 

  • Öflugt alþjóðlegt samfélag fagfólks á sviði menntunar 

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skólaþróun 

Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Öldugata 23, 101 Reykjavík
Túngata 15, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar