
Deildarstjóri unglingadeildar Grunnskólans í Þorlákshöfn
Við í Grunnskólanum í Þorlákshöfn leitum að deildarstjóra unglingadeildar í 100%
starf frá 1. ágúst 2026 um er að ræða afleysingu til eins skólaárs. Deildarstjóri er
hluti af fjögurra manna stjórnendateymi og tekur þátt í daglegri stjórnun og
faglegri forystu skólans.
Í skólanum eru um 290 nemendur og 70 starfsmenn. Unnið er eftir hugmyndafræði
Uppeldis til ábyrgðar, teymiskennslu og leiðsagnarmats, auk þátttöku í verkefnum
eins og Grænfána og Heilsueflandi skóla.
Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og velgengni. Frekari upplýsingar má
finna á heimasíðu skólans.
Umsókninni skal fylgja afrit af leyfisbréfi og greinargóð skýrsla/ferilskrá um fyrri störf umsækjanda,
menntun, kennslu – og stjórnunarreynslu og þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað
geta ljósi á færni til að sinna starfi deildarstjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um
hugmyndir umsækjanda og sýn á starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands
vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2026.
Nánari upplýsingar veita: Ólína Þorleifsdóttir skólastjóri og Jóhanna Margrét, sviðstjóri Fjölskyldu-og fræðslusviðs [email protected] / [email protected]
Umsóknum er skilað í gegnum rafræna umsókn á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.
- Veitir faglega forystu í skólastarfi og skólaþróun í samvinnu við stjórnendur og
kennara. - Tekur þátt í mótun og framkvæmd stefnu skólans.
- Heldur utan um kennsluþörf og stoðþjónustu nemenda í 8.
–10. bekk. - Stýrir nemendateymum, valgreinum og nemendaráði í unglingadeild.
- Stýrir stigsfundum og skipulagi í unglingadeild.
- Annast önnur verkefni sem skólastjóri felur honum.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Reynsla af kennslu á unglingastigi og þróunarstarfi.
- Þekking á skólaþróun, m.a. Uppeldi til ábyrgðar, leiðsagnarnámi og innra mati.
- Góð hæfni í teymisvinnu, samskiptum og skipulagi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Frumkvæði, faglegur metnaður og áhugi á skólaþróun.
- Góð tækniþekking, reglusemi og stundvísi.
Íslenska
Enska










